mánudagur 21. maí 05 2012

Hér má nálgast verkbeiðni sem hægt er að prenta út og senda okkur:

Fax: 587 6658, eða E-mail fanntofell@fanntofell.is



Verkbeiðni

Hvernig á að panta

Fanntófell Bæklingur


Við framleiðum...

Afgreiðsluborð, baðborð, barborð, gluggakistur, sólbekki, borðplötur, matarborð, hringborð, sporöskulöguð borð, hillur, skápahurðir, klósett skilrúm, sökklaefni, veggklæðningar o.fl. fyrir arkitekta, hönnuði, verktaka,innréttingaframleiðendur og einstaklinga, allt eftri óskum hvers og eins. 

 
Harðplast

Fanntófell býður upp á hágæða harðplast HTP (High pressure laminales) frá Arpa og Formica. Plastið er slitsterkt með mikið hitaþol. Erum með mikið úrval lita á lager, hægt er að fá ýmsar áferðir svo sem háglans, matt og yrjótt.
Akrílsteinn

Fanntófell er með Rausolid akrílstein frá REHAU, sem er gegnheilt steinefni, byggt á náttúrulegu steinefni, akríl bindiefni og litarefni. Kostir: Samskeyti nánast ósýnileg, hitaþolið, auðvelt að þrífa og dregur ekki í sig lit, raka, óhreinindi eða bakteríur. Skapar óteljandi möguleika.
Límtré

Fanntófell býður upp á límtréborðplötur. Þykkt á plötum er 26 mm, 32 mm og 42 mm. Límtréð er olíuborið og tilbúið til uppsetningar.